FYRIR LINUX · UBUNTU / DEBIAN

Aðstoðin er
komin á Linux.

Sama viðmót, sama tengikerfi. Hjálpaðu Linux- og Windows-notendum úr einu forriti.

Lógó Fjar Aðstoðar

Fjar Aðstoð 0.9.25

Útgefandi: 2024 ehf

Ubuntu / Debian · 64 bita (amd64)

↓ Sækja myndræna uppsetningu

Settu upp með tvísmelli.

  1. Sæktu uppsetningarskrána og opnaðu Downloads.
  2. Við fyrstu keyrslu: hægrismelltu á skrána, veldu Eigindir / Properties → Heimildir / Permissions og leyfðu keyrslu sem forrit (Allow executing file as program).
  3. Tvísmelltu á skrána. Uppsetning Fjar Aðstoðar opnast með lógóinu og Útgefandi: 2024 ehf.
  4. Veldu Setja upp / Uppfæra, samþykktu kerfisheimildina og veldu svo Opna Fjar Aðstoð.

Ekki þarf að skrifa skipanir í Terminal. Nettenging þarf fyrir kerfisháðir sem vantar. Lokaðu eldri Fjar Aðstoð áður en þú uppfærir.

Sækja frekar .deb fyrir pakkastjóra Ubuntu/Debian ↓

Með .deb er glugginn frá pakkastjóra kerfisins. Hann getur sleppt lógói og útgefanda þótt gögnin fylgi pakkanum.

Veldu rétta skjálotu.

Til að fá aðstoð á Wayland skaltu velja skjá og leyfa skjádeilingu, mús og lyklaborð í heimildaglugga Ubuntu. Tengikóði birtist þegar skjádeiling er tilbúin. X11/Xorg er áfram stutt. Til að stjórna annarri tölvu má nota X11 eða Wayland með XWayland.

Hljóð notar PulseAudio eða PipeWire-Pulse. Læstur skjár og innskráningarskjár eru ekki studdir.

Aðstoðarborðinn fylgir.

Forritið styður sömu aðstoðarborða og tímabundnu tengingar og Windows-útgáfan. Opnaðu forritið einu sinni eftir uppsetningu til að skrá vefslóðatenglana.

Nýrri Linux-útgáfa er sett upp með nýrri uppsetningarskrá. Sjálfvirk Linux-uppfærsludreifing er ekki virk í þessari útgáfu.

Sýna SHA-2565492489cfda77fbbd9f2a5dea01aaf5404b36157ba5895abebeec230f8cfb090
Sækja Windows-útgáfu ↗