Opnaðu forritið
Sækið Fjar Aðstoð á báðar tölvur, setjið upp og opnið.
FJAR AÐSTOÐ · WINDOWS OG LINUX
Stundum er auðveldara að sýna en að útskýra. Tengstu annarri tölvu og hjálpaðu til, eins og þú værir á staðnum.
Sækja fyrir Linux ↗Stutt á milli, jafnvel úr fjarlægð.
FYRSTA TENGINGIN
Báðir opna sama forritið. Annar fær aðstoð, hinn hjálpar til.
Sækið Fjar Aðstoð á báðar tölvur, setjið upp og opnið.
Sá sem fær aðstoð gefur hjálparanum tengikóðann og sérstaka lykilorðið.
Hjálparinn velur „Stjórna öðru tæki“, slær upplýsingarnar inn og tengist.
KÍKTU INN
Skýrt viðmót, allt á sínum stað. Smelltu á mynd til að stækka og fletta á milli skjáskota.

Tengikóði og lykilorð á einum stað, tilbúin til að deila með hjálparanum.

Sláðu inn tengiupplýsingar eða veldu tæki úr uppáhaldi.

Veldu ljóst eða dökkt útlit, tungumál og eigið lykilorð.
Skjáskot úr útgáfu 0.9.11. Tengikóði og lykilorð á myndunum eru aðeins sýnidæmi.
SAMI SKJÁR. MINNI FJARLÆGÐ.
Sjáðu hvað er á skjánum, notaðu mús og lyklaborð og leystu málið með notandanum.
Sjá leiðbeiningarEngin portopnun á heimabeininum. Báðar tölvur tengjast miðlaranum út á við.
Heilskjár og stjórntæki sem birtast þegar músin fer efst á skjáinn.
Flyttu texta á milli tölvanna með kunnuglegum Ctrl+C og Ctrl+V flýtilyklum.
GOTT AÐ VITA
Tengikóðinn finnur tölvuna. Lykilorðið veitir aðgang að henni. Hjálparinn þarf hvort tveggja til að tengjast.
Nei. Tölvurnar tengjast miðlaranum með útleiðandi tengingum. Þær þurfa netaðgang; sum vinnustaðanet kunna að takmarka slíkar tengingar.
Sá sem hefur gildan tengikóða og rétt lykilorð getur fengið stjórn án nýrrar staðfestingar. Deildu því aðeins með þeim sem þú treystir. Þú getur slitið lotu eða lokað forritinu.
Frá útgáfu 0.9.8 færðu tilkynningu þegar ný uppfærsla er tilbúin. Þú staðfestir fyrst; síðan lokast forritið, uppfærslan er sett upp og forritið opnast aftur. Opnar aðstoðarlotur rofna þegar þú samþykkir. Þú getur valið að bíða og notað uppfærsluhnappinn neðst síðar.
TILBÚIN AÐ BYRJA?