FJAR AÐSTOÐ · WINDOWS OG LINUX

Nær þér.
Hvar sem er.

Stundum er auðveldara að sýna en að útskýra. Tengstu annarri tölvu og hjálpaðu til, eins og þú værir á staðnum.

Sækja fyrir Linux ↗

Útgáfa 0.9.55 · Windows 64-bita · 72,1 MB

AKRANES · LANGISANDUR

Stutt á milli, jafnvel úr fjarlægð.

FYRSTA TENGINGIN

Þrjú skref.
Þá getum við byrjað.

Báðir opna sama forritið. Annar fær aðstoð, hinn hjálpar til.

01

Opnaðu forritið

Sækið Fjar Aðstoð á báðar tölvur, setjið upp og opnið.

02

Deildu kóðanum

Sá sem fær aðstoð gefur hjálparanum tengikóðann og sérstaka lykilorðið.

03

Tengstu og hjálpaðu

Hjálparinn velur „Stjórna öðru tæki“, slær upplýsingarnar inn og tengist.

KÍKTU INN

Svona lítur
aðstoðin út.

Skýrt viðmót, allt á sínum stað. Smelltu á mynd til að stækka og fletta á milli skjáskota.

Fá aðstoð: tengikóði og sérstakt lykilorð í aðalglugga Fjar Aðstoðar.
01

Fá aðstoð

Tengikóði og lykilorð á einum stað, tilbúin til að deila með hjálparanum.

Stjórna öðru tæki: reitir fyrir tengikóða og lykilorð og listi yfir uppáhaldstæki.
02

Stjórna öðru tæki

Sláðu inn tengiupplýsingar eða veldu tæki úr uppáhaldi.

Stillingar Fjar Aðstoðar með dökku útliti, íslensku tungumáli og reitum fyrir eigið lykilorð.
03

Þitt útlit. Þitt tungumál.

Veldu ljóst eða dökkt útlit, tungumál og eigið lykilorð.

Skjáskot úr útgáfu 0.9.11. Tengikóði og lykilorð á myndunum eru aðeins sýnidæmi.

SAMI SKJÁR. MINNI FJARLÆGÐ.

Hjálpin verður
hluti af skjánum.

Sjáðu hvað er á skjánum, notaðu mús og lyklaborð og leystu málið með notandanum.

Sjá leiðbeiningar

Tenging yfir internetið

Engin portopnun á heimabeininum. Báðar tölvur tengjast miðlaranum út á við.

Pláss fyrir allan skjáinn

Heilskjár og stjórntæki sem birtast þegar músin fer efst á skjáinn.

Afrita. Líma. Halda áfram.

Flyttu texta á milli tölvanna með kunnuglegum Ctrl+C og Ctrl+V flýtilyklum.

GOTT AÐ VITA

Áður en
þú tengist.

Hver er munurinn á tengikóða og lykilorði?

Tengikóðinn finnur tölvuna. Lykilorðið veitir aðgang að henni. Hjálparinn þarf hvort tveggja til að tengjast.

Þarf ég að opna port á beininum?

Nei. Tölvurnar tengjast miðlaranum með útleiðandi tengingum. Þær þurfa netaðgang; sum vinnustaðanet kunna að takmarka slíkar tengingar.

Hver getur stjórnað tölvunni minni?

Sá sem hefur gildan tengikóða og rétt lykilorð getur fengið stjórn án nýrrar staðfestingar. Deildu því aðeins með þeim sem þú treystir. Þú getur slitið lotu eða lokað forritinu.

Uppfærist forritið sjálfkrafa?

Frá útgáfu 0.9.8 færðu tilkynningu þegar ný uppfærsla er tilbúin. Þú staðfestir fyrst; síðan lokast forritið, uppfærslan er sett upp og forritið opnast aftur. Opnar aðstoðarlotur rofna þegar þú samþykkir. Þú getur valið að bíða og notað uppfærsluhnappinn neðst síðar.

TILBÚIN AÐ BYRJA?

Hjálpin er nær en þú heldur.

Sækja Fjar Aðstoð

FJAR AÐSTOÐ · SKJÁSKOT